Hvað veldur því að Gylfi (180°) er að tjá sig að fyrra bragði um næstu afgreiðslu AGS? Er það ekki hlutverk þeirra hjá AGS að segja til um hvenær næsta afgreiðsla á láninu til Íslands er afgreidd, hvort sem hún tefst eða ekki? Vinnur Gylfi kannske hjá AGS? Kannske á prósentum hjá Gordon Brown og hinum ruddunum sem ætla að kaffæra okkur í skuldum fram undir lok aldarinnar! Við þurfum alvörumenn hér í ríkisstjórn, ekki strengjabrúður.
Líklegt að AGS-lán frestist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvað áttu við? Er það ekki hlutverk góðra stjórnmálamanna/fræðimanna að segja þjóðinni satt og rétt frá?
Gylfi veit hvað hann er að segja. Mættu margir í stjórnarandstöðunni taka hann til fyrirmyndar!
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 13.1.2010 kl. 13:45
Ekki spurning um hve mikið satt og rétt Gylfi o.Co hafa sagt þjóðinni, heldur hvaða ákvarðanirnar hafa verið teknar og hver stefnan er, t.d. kynning á málstað þjóðarinnar hefur ekki verið sinnt í tíð þessarar ríkisstjórnar, forsetinn tók af skarið við blendin viðbrögð. Gylfi og samráðherrar hans eru eins og kjölturakkar sem ganga erinda AGS, Breta og Hollendinga, lúta í duftið án mótmæla og án þess að hugsa út í afleiðingarnar sem Ice-save reikningurinn mun hafa hér næstu áratugi. Er á meðan er, er líklega það máltæki sem á best við hér.
Nonni
Jón V. Þorsteinsson, 13.1.2010 kl. 14:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.