Strengjabrúðan Gylfi

Hvað veldur því að Gylfi (180°) er að tjá sig að fyrra bragði um næstu afgreiðslu AGS?  Er það ekki hlutverk þeirra hjá AGS að segja til um hvenær næsta afgreiðsla á láninu til Íslands er afgreidd, hvort sem hún tefst eða ekki?  Vinnur Gylfi kannske hjá AGS?  Kannske á prósentum hjá Gordon Brown og hinum ruddunum sem ætla að kaffæra okkur í skuldum fram undir lok aldarinnar!  Við þurfum alvörumenn hér í ríkisstjórn, ekki strengjabrúður.

 


mbl.is Líklegt að AGS-lán frestist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Hvað áttu við? Er það ekki hlutverk góðra stjórnmálamanna/fræðimanna að segja þjóðinni satt og rétt frá?

Gylfi veit hvað hann er að segja. Mættu margir í stjórnarandstöðunni taka hann til fyrirmyndar!

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 13.1.2010 kl. 13:45

2 Smámynd: Jón V. Þorsteinsson

Ekki spurning um hve mikið satt og rétt Gylfi o.Co hafa sagt þjóðinni, heldur hvaða ákvarðanirnar hafa verið teknar og hver stefnan er, t.d. kynning á málstað þjóðarinnar hefur ekki verið sinnt í tíð þessarar ríkisstjórnar, forsetinn tók af skarið við blendin viðbrögð.  Gylfi og samráðherrar hans eru eins og kjölturakkar sem ganga erinda AGS, Breta og Hollendinga, lúta í duftið án mótmæla og án þess að hugsa út í afleiðingarnar sem Ice-save reikningurinn mun hafa hér næstu áratugi.  Er á meðan er, er líklega það máltæki sem á best við hér.

 Nonni

Jón V. Þorsteinsson, 13.1.2010 kl. 14:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jón V. Þorsteinsson
Jón V. Þorsteinsson
Höfundur er kominn af vestfirðingum í föðurætt og skagfirðingum í móðurætt og hefur m.a. það fyrir stafni að þrífa upp eftir útrásarvíkingana ofl.  sem drulluðu uppá bak og settu landið á hausinn.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband